UFC 143: Upphitun og spádómar

February 4, 2012 kl. 14:06

Í kvöld, laugardaginn fjórða febrúar, fáum við loksins ‘pay-per-view’ UFC mót þegar UFC 143 fer í loftið. Allt bendir til þess að við fáum að sjá stórskemmtilegt mót sem býður meðal annars upp á: hörkubardaga milli tveggja glímusnillinga þegar Josh Koscheck og Mike Pierce mætast; svakalegan þungarvigtarbardaga milli tveggja risa, Roy Nelson og Fabricio Werdum, sem báðir hafa gríðarlegan höggþunga og svarta beltið í brazilian jiu jitsu; Síðast en ekki síst bardaga um bráðabirgðartitilinn (e. Interim title) í veltivigtinni þegar Nick Diaz mætir Carlos Condit.

Upphaflega átti Georges St-Pierre að verja veltivigtartitilinn sinn á þessu móti en hnémeiðsli, sem heimila honum ekki að berjast fyrr en seint á þessu ári, urðu til þess að UFC ákváðu að búa til bráðabirgðartitil þangað til GSP verður tilbúinn að verja sinn titil. GSP hefur lýst því yfir að hann vilji sjá Nick Diaz sigra því hann þolir ekki hrokann í Diaz og langi til að þagga niður í honum persónulega.

Hér fyrir neðan er smá umfjöllun um helstu bardagana á aðalkortinu ásamt minni spá fyrir öllum bardögunum á mótinu.

Nick Diaz gegn Carlos Condit

Það verður ekki tekið af Nick Diaz að hann er búinn að vera óstöðvandi síðustu 4 ár, er án efa einn mest spennandi bardagakappi veraldar um þessar mundir og er af flestum talinn vera í öðru sæti yfir bestu bardagamenn í veltivigt. Síðan hann tapaði gegn KJ Noons árið 2007 hefur hann unnið 11 bardaga í röð og einungis tveir af þeim endað með dómaraákvörðun ( sex tæknileg rothögg / þrjár uppgjafir ). Í þokkabót varð hann veltivigtarmeistarinn í Strikeforce sem hann varði fjórum sinnum áður en hann yfirgaf félagið og kom aftur til UFC.

En það er ekki einungis bardagakunnátta sem vekur áhuga fólks á Nick Diaz. Það sem gerir hann sérstakan er furðuleg hegðun fyrir utan bardagaátthyrningsins. Sem dæmi þá réðst hann á Joe Riggs á sjúkrahúsi eftir að þeir mættust á UFC 57, hann réðst ásamt fleirum á Jason Miller, á Strikeforce Nashville, þegar Miller kom og óskaði eftir bardaga gegn félaga þeirra Jake Shields og eru viðtöl við hann þekkt fyrir að enda á óskiljanlegum ræðum t.d. um peningaleysi.

Síðasta uppákoma Diaz kom síðast á UFC 137, þar sem mótherji hans var GSP, þegar hann missti af nokkrum flugferðum fyrir fréttamannafundi og sást hlaupa út úr sínu húsi þegar fólk fór að athuga hvort ekki væri allt í lagi með kappann. Eftir það töldu fólkið hjá UFC ekki geta treyst honum og fengu Carlos Condit í hans stað. Diaz fékk að lokum að berjast á þessu móti gegn BJ Penn og er frammistaða Diaz í þeim bardaga talin ein sú besta á hans ferli er hann lúbarði BJ í þriggja lotu bardaga og sigraði með dómaraákvörðun.

Það er ansi margt líkt með Carlos Condit og Nick Diaz. Líkt og Diaz er Condit búinn að standa sig frábærlega síðustu ár. Hann hefur unnið tólf af síðustu þrettán bardögum sínum og kom hann yfir til UFC sem veltivigtarmeistari WEC félagsins og sem hann varði hann fjórum sinnum. Eina tapið í síðustu þrettán bardögum kom gegn Martin Kampmann, þegar Condit keppti í sínum fyrsta UFC bardaga og endaði sá bardagi skiptri dómaraákvörðun (e. split decision).

Condit kemur inn í þennan bardaga með mikið sjálfstraust þar sem þrír síðustu bardagar hans hafa endað með stórglæsilegum rothöggum og er þá vert að nefna frábæran hægri krók sem rotaði Dan Hardy og svo þegar hann rotaði Dong Hyun Kim með fljúgandi hnésparki (e. flying knee). Eins og var nefnt hér fyrir ofan þá átti Condit að mæta GSP eftir að Diaz var tekinn út en hann missti af því tækifæri þegar GSP tilkynnti að hann þyrfti að fara í aðgerð vegna hnémeiðslanna.

Ef ég ætti að veðja á hvaða bardagi fær ‘fight of the night’ verðlaun kvöldsins, þá væri það þessi viðureign. Báðir tveir eru rosalegir þegar það kemur að boxi & kickboxi en Diaz verður að teljast hættulegri ef bardaginn fer fram á gólfiðnu. Litlar líkur eru samt á því þar sem þeir báðir hafa viljað berjast standandi undanfarið.

Mín spá:
Gríðarlega erfitt að spá fyrir um þennan bardaga sem er líklega ein helsta ástæðan af hverju maður er orðinn svona spenntur fyrir kvöldinu. Ég er mikill Carlos Condit aðdáandi en á sama tíma vil ég sjá GSP lúberja Diaz. Ég spái Diaz sigri með rothöggi en kemst ekki hjá því að halda með Condit.

Roy Nelson gegn Fabricio Werdum

“Co-main event” kvöldsins er á milli þungarvigtarrisana Roy Nelson og Fabricio Werdum. Werdum er af flestum talinn í sjötta sæti yfir bestu bardagamenn þungarvigtarinnar á meðan Nelson er í 17. sæti.

Síðast sáum við Werdum í Strikeforce þar sem hann mætti meistaranum Alistair Overeem. Sá bardagi var algjör hörmung þar sem Werdum vildi einungis lokka Overeem til að berjast á gólfinu en Overeem vildi berjast standandi. Werdum endaði með að líta út ansi kjánalega og tapaði með dómaraákvörðun. Það sem gerir þetta enn furðulegra er að Werdum var að standa sig frábærlega að boxa gegn Overeem og því þurfti hann ekki að láta svona en höggþungi Overeem hefur líklega verið ofarlega í huga hans í þeim bardaga. Þar á undan sigraði Werdum Mike Kyle, Antonio Silva og goðsögnina Fedor Emilanenko.

Roy Nelson er búinn að eiga upp og niður feril hjá UFC. Eftir sigur í ‘The Ultimate Fighter’ þáttunum þá mætti hann Stefan Struve og endaði sá bardagi með að Nelson rotaði Struve í fyrstu lotu. Næst mætti hann núverandi meistara Junior Dos Santos og sannaði hversu vel hann getur tekið högg er Junior lúbarði kappann í þrjár lotur og sigraði með dómaraákvörðun. Nelson mætti svo Frank Mir og tapaði með dómaraákvörðun. Síðast sáum við hann á UFC 137 þar sem hann rotaði Cro-Cop í þriðju lotu.

Þetta verður forvitnilegur bardagi þar sem þeir báðir eru með svarta beltið í brazilian jui-jitsu, hrikalega höggþungir og með heilmikla reynslu. Aðalspurningin verður hvort við fáum að sjá þá kljást á gólfinu eða hvort þeir ætli sér að halda bardaganum standandi.

Mín spá:
Werdum sigrar með dómaraákvörðun.

Josh Koscheck gegn Mike Pierce

Koscheck er einn af þessum gaurum sem verður alltaf einn af topp gæjunum í veltivigt en aldrei nógu góður til að verða meistari. Því miður held ég að Pierce sé svipaður að því leyti.

Eftir rúmt ársfrí eftir bardagann gegn GSP þá mætti Koscheck Mark Hughes og endaði sá bardagi með rothöggi í lok fyrstu lotu. Koscheck stefnir á að fá annan titilbardaga og þarf hann líklega 3-4 bardaga í viðbót gegn topp gæjum til að vinna sér inn þann möguleika. Koscheck átti upphaflega að mæta Condit á þessu móti en meiðsli GSP breyttu þeim áætlunum og fékk því Koscheck Pierce sem næsta mótherja.

Mike Pierce er með tíu sigra og tvö töp í síðustu tólf bardögum og er annað tapið gegn liðsfélaga Koscheck, John Fitch. Síðast sáum við hann gegn Paul Bradley þar sem hann sigraði með skiptri dómaraákvörðun.

Mín spá:
Helsti styrkur þeirra beggja er glímukunnátta og tel ég að Koscheck hafi yfirburði þar sem og annaðstaðar. Ætla að gerast svo kræfur og spá Koscheck sigri með rothöggi.

Renan Barao gegn Scott Jorgensen

Barao gegn Jorgensen verður gífurlega skemmtilegur bardagi.
Jorgensen er án efa einn af bestu bardagaköppum bantamvigtarinnar og mætir hann hér Muay Thai og BJJ skrímslinu Renan Barao. Jorgensen er að reyna koma sér aftur á sigurbraut eftir tapið gegn meistaranum, Dominic Cruz, á WEC 53. Hann hefur unnið tvo síðustu bardaga sína eftir það tap, gegn Ken Stone og Jeff Curran og myndi sigur gegn Barao lyfta honum ansi ofarlega í goggunarröðinni fyrir bantamvigtina.

Mótherji hans Renan Barao er hinsvegar enginn aukvisi. Barao er með stórglæsilegan MMA feril, 27 sigra og eitt tap og sáum við hann síðast gegn Brad Pickett á UFC 138 þar sem hann sigraði með uppgjöf Pickett.

Mín spá:
Ég held að Barao muni bráðlega berjast um titilinn og því ætla ég að spá honum sigri gegn Jorgensen með dómaraákvörðun.

Ed Herman gegn Clifford Starks

Ed Herman þekkja margir úr ‘The Ultimate Fighter’ þáttaröðinni og hefur hann mjög misjafnan feril í UFC. Eftir bardagann gegn Aaron Simpsons árið 2009, þar sem hann hætti vegna hnémeiðsla, þurfti kappinn að taka sér tveggja frí til að jafna sig. Endurkoma hans gæti vart hafa verið betri þar sem hann byrjaði á því að steinrota Tim Credeur í júní og svo ná hælkróki á Kyle Noke tveim mánuðum síðar. Hann virðist einnig vera búinn að styrkja sig heilmikið og hefur litið allsvakalega vel út í þessum tveim bardögum.

Hinn ósigraði Clifford Starks verður hinsvegar erfið raun fyrir Herman. Starks hefur unnið alla sína átta bardaga en hann hefur aðeins keppt einu sinni í UFC og var það gegn Dustin Jacoby á ‘UFC 137′ þar sem hann sigraði með dómaraákvörðun. Starks er gífurlega sterkur glímukappi og hefur verið að styrkja sig í kickboxi undanfarið.

Mín spá:
Miðað við frammistöður Herman undanfarið þá ætla ég að hafa trú á að hann sigri Starks með rothöggi.

Dustin Poirier gegn Max Holloway

Mín spá:
Poirier sigrar með dómaraákvörðun.

Alex Caceres gegn Edwin Figueroa

Mín spá:
Edwin Figueroa sigrar með rothöggi.

Matt Riddle gegn Henry Martinez

Mín spá:
Martinez sigrar með dómaraákvörðun.

Matt Brown gegn Chris Cope

Mín spá:
Matt Brown sigrar með rothöggi.

Rafael Natal gegn Michael Kuiper

Mín spá:
Kuiper sigrar með rothöggi.

Dan Stittgen gegn Stephen Thompson

Mín spá:
Thompson sigrar með rothöggi

  1. No comments yet.
(will not be published)