UFC mætir aftur á FOX sjónvarpsstöðina núna á laugardaginn og er það fyrsta mótið af fjölmörgum, þar sem sjö ára samningur var gerður við stöðina fyrir nokkrum mánuðum. ‘UFC on FOX 1′ var bónusmót og ekki talið með sem hluti af samningnum.
Á þessu móti verða tveir “contender” bardagar og kemur þá í ljós hverjir verða næstu andstæðingar Anderson Silva og Jon Jones um milli- og léttþungarvigtartitlana.
Upphaflega átti Mark Munoz að keppa á þessu móti gegn Chael Sonnen en hann meiddist á æfingu og mætir því Sonnen Bisping og Maia var settur gegn Chris Weidman.
Ég ætla að gefa mína spá hér fyrir neðan og fjalla aðeins um bardagana á aðalkortinu.
Rashad Evans gegn Phil Davis
|
|
|
Í aðalbardaga kvöldins mætir Rashad Evans hinum ósigraða Phil Davis. Síðast sáum við Rashad sigra Tito Ortiz á ‘UFC 133′, Rashad átti upphaflega að mæta Davis á því móti en hnémeiðsli urðu til þess að Phil varð að hætta við og hoppaði Tito inn þrátt fyrir að hafa barist gegn Ryan Bader einungis mánuði áður.
Það verður hinsvegar ekki tekið af Rashad að hann var í toppformi, vel undirbúinn og var gífurlega sannfærandi gegn Tito. Maður vonar þar af leiðandi að við fáum að sjá kappann aftur í sama formi annað kvöld.
UFC eru búnir að fara hárrétt með Phil Davis hingað til. Frá því að hann keppti fyrst fyrir þá, á ‘UFC 109′, þá hefur hann mætt sterkari andstæðingi með hverjum bardaga. Hann byrjaði UFC ferilinn á því að sigra Brian Stann, sem var í röngum þyngdarflokki, svo Alexander Gustafsson, Rodney Wallace, Tim Boetsch og núna síðast Lil Nog.
Rashad verður stórt stökk fyrir Davis og er Rashad skiljanlega sigurstranglegri en miðað við þá hæfileika sem Davis hefur sýnt hingað til þá á hann mjög góða möguleika á sigri.
Mín spá:
Ég held að reynsla Rashad muni skipta sköpum og ætla ég að tippa á að gamli meistarinn beri sigur af hólmi með dómaraákvörðun.
Michael Bisping gegn Chael Sonnen
|
|
|
“Co-main event” kvöldsins (Kann einhver orðin fyrir þetta á íslensku?) verður svakalegur þar sem tveir mest áberandi karakterar UFC mætast í átthyrningnum og keppa um hver mætir Anderson Silva um titilinn. Það þarf eflaust lítið að kynna þessa tvo menn fyrir lesendum en gott að rifja upp í hvernig bardagaformi þessir tveir mæta í á morgun.
Sonnen hefur unnið fjóra af fimm síðustu bardögum, sigraði Brian Stann, Marquardt, Okami og Dan Miller en tapaði gegn Anderson Silva þar sem Sonnen var aðeins örfáum sekúndum frá sigri. Síðast sáum við hann gegn Brian Stann, sem á þeim tíma var talinn vera næsti titilandstæðingur Silva, og var sá bardagi mjög afgerandi fyrir Sonnen sem endaði með uppgjöf af hendi Stann í annarri lotu.
Bisping hefur unnið síðustu fjóra bardaga, gegn Jason Miller, Rivera, Akiyama og Dan Miller en tapaði síðast gegn Wanderlei Silva. Bisping hefur litið mjög vel út í síðustu bardögum, er eitilharður, erfitt að ná honum niður á gólfið og feiknagóður boxari.
Mín spá:
Að vera góður í að halda bardögum standandi er eitt en að mæta Chael Sonnen er allt annað! Ég sé ekki annað en gólfkennslustund fyrir Bisping og sigur fyrir Sonnen með dómaraákvörðun.
Chris Weidman gegn Demian Maia
|
|
|
Þá er það fyrsti bardaginn á aðalkortinu en þar mætast tveir öflugir BJJ bardagakappar; undrabarnið Demian Maia gegn hinum eitilharða Chris Weidman.
Maia hefur verið upp og niður í síðustu bardögum, þrír sigrar og tvö töp í síðustu fimm bardögum og hafa þeir allir endað í dómaraákvörðun. Ég er þó aðeins ósáttur við þetta þar sem mér fannst Maia sigra Munoz á ‘UFC 131′. Það hefur hinsvegar sést undanfarið að hann hefur einbeitt sér að því að lagfæra sinn helsta veikleika sem er boxið. Sú vinna hefur skilað heilmiklu og sást í síðustu tveim bardögum að hann hefur bætt sig umtalsvert.
Weidman þekkja ekki eins margir en hann var valinn hættulegasti nýliðinn í millivigtinni árið 2010, er með fjólubláa beltið í BJJ frá Matt Serra og Ray Longo og er ósigraður á sínum sjö bardaga ferli. Weidman er kominn með þrjá bardaga í UFC, gegn Alessio Sakara, Jesse Bongfeldt og Tom Lawlor.
Það verður fróðlegt að sjá hvort við fáum að sjá þá kljást á gólfinu eða hvort þeir ætli sér að sjá hvor sé betri boxarinn.
Mín spá:
Ég held að Maia er of stórt stökk fyrir Weidman og spái ég því Maia sigri með dómaraákvörðun.
Evan Dunham gegn Nik Lentz
|
|
|
Mín spá:
Dunham sigrar Lentz hérna með uppgjöf.
Jon Olav Einemo gegn Mike Russow
|
|
|
Mín spá:
Einemo sigrar Russow með rothöggi.
George Roop gegn Cub Swanson
|
|
|
Mín spá:
Roop sigrar Swanson með rothöggi.
Charles Oliveira gegn Eric Wisely
|
|
|
Mín spá:
Oliveira sigrar Wisely með uppgjöf.
Michael Johnson gegn Shane Roller
|
|
|
Mín spá:
Johnson sigrar Roller með rothöggi.
Joey Beltran gegn Lavar Johnson
|
|
|
Mín spá:
Johnson sigrar Beltran með dómaraákvörðun.
Chris Camozzi gegn Dustin Jacoby
|
|
|
Mín spá:
Jacoby sigrar Camozzi með rothöggi.

#1 by kari on January 27, 2012 kl. 19:56 - 19:56
Væri alveg til í að sjá Sonnen og Silva aftur. En ég ætla samt að halda með Bisping í þessum bardaga.
#2 by Sjonni on January 27, 2012 kl. 22:08 - 22:08
Mín spá:
Phil Davis decision
Chael Sonnen decision
Chris Weidman TKO
Þetta á samt vonandi eftir að vera gott card og vonandi að flestir bardaganir endi ekki í decision
#3 by Orri on January 30, 2012 kl. 08:53 - 08:53
Þetta kort var því miður eitt stórt decision ævintýri, furðulegt lineup fyrir Fox 2 þar sem að flestir voru að giska á þetta færi svona.
Dana vildi greinilega vera viss um að þetta færi ekki eins og síðast þegar allt kláraðist á nokkrum sekúndum
#4 by stjáni on February 2, 2012 kl. 10:03 - 10:03
Þeir sem hafa ekki séð preliminary fights á þessu korti ættu að taka kvöldstund frá og kíkja á þá bardaga, þeir voru hörkugóðir.
*Spoiler*
Fannst líka ræðan hans Chael glötuð, maðurinn talaði eins og hann hefði valtað yfir Bisping þegar þetta var close decision. Magnað fyrirbæri
#5 by ellioman on February 2, 2012 kl. 11:33 - 11:33
Þetta er allt svo úber plottað hjá Sonnen, sem ég er persónulega að fíla í ræmur hjá honum.
Þessi ræða hjá honum var tribute til Billy Graham sem var wrestling gæji bakk in ze deis.
Tjekkaðu á þessu
=>
http://www.bloodyelbow.com/2012/1/29/2755842/ufc-on-fox-2-results-chael-sonnen-pay-homage-to-super-star-billy
#6 by ellioman on February 2, 2012 kl. 11:37 - 11:37
Og já, prelims voru mun hressari en aðalkortið fyrir utan hræðilega bardagann á milli Einemo og Russow.
Þá mæli ég sérstaklega með Oliviera vs. Wisely og Beltran vs. Johnson….